Framkvæmdir eru hafnar við nýja viðbyggingu Grunnskólans í Hveragerði sem verður um 700 fermetrar á tveimur hæðum.
Það eru engir nýgræðingar sem teikna og hanna bygginguna, annar þeirra er 83 ára og hinn er 74 ára.
Fyrsta skóflustungan af nýju viðbygginguna var tekin nýlega þar sem passað var upp á allir héldu fjarlægðarmörkum á meðan athöfnin fór fram með stunguskóflunum. Nýja viðbyggingin verður byggð norðan við núverandi skólabyggingu.
„Þetta breytir heilmiklu, við erum að fá sex kennslustofur og fjölnota rými á milli þeirra sem að eftir að nýtast í öllu starfi í skólanum. Þetta er bara mjög spennandi fyrir starfsfólk og nemendur skólans,“ segir Sævar Þór Helgason skólastjóri Grunnskóla Hveragerðis
Um 400 nemendur eru í skólanum og 70 starfsmenn. Reik verk ehf. átti lægsta tilboðið í bygginguna eða tæplega 400 milljónir króna. Verklok eru áætluð í júlí á næsta ári.
Hönnunarteymi byggingarinnar, þeir dr. Maggi Jónsson, sem er 83 ára gamall og Ríkharður Kristjánsson, sem er 74 ára kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að spennandi verkefnum, enda báðir í fullu fjöri og á besta aldri eins og þeir segja sjálfir.
„Þetta er bara áfangi, síðan eru tveir, þrír áfangar eftir en þegar þeim er lokið þá erum við komin með mjög heildstæða byggingu, sem að vonandi hentar vel“, segir dr. Maggi.
Dr. Maggi segir alltaf gaman að vinna að skemmtilegum verkefnum.
“Já, þetta er alltaf jafn skemmtilegt, maður sér enga ástæðu til að hætta á meðan maður hefur gaman af þessu og hefur heilsu til.“
„Þetta verður bara mjög flott viðbygging, flottasti arkitekt landsins og ég að stýra þessu, það getur ekki verið annað en gott.
Við vorum alveg sammála um hönnun nýju viðbyggingarinnar enda erum við erum búnir að vera sammála í fimmtíu ár held ég,“ segir Ríkharður Kristjánsson, 74 ára hönnunarstjóri byggingarinnar.
Heimild: Visir.is