Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Skóflustunga að viðbyggingu Grunnskólans í Hveragerði

Skóflustunga að viðbyggingu Grunnskólans í Hveragerði

228
0
Aldís Hafsteinsdóttir og Rannveig Eir skrifa undir. Mynd: Dagskráin/GPP

Tekin var skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Grunnskólann í Hveragerði þann 22. apríl sl. Það var Reir verk ehf. sem átti lægsta tilboðið í verkið eða ríflega 390 m. kr.

<>

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og Rannveig Eir Einarsdóttir frá Reir verki sátu í tveggja metra fjarlægð hvor frá annarri við undirritun verksamningsins. Samkomutakmarkanir og tveggja metra reglan settu svip sinn á samkomuna.

Þrátt fyrir það var veðrið með besta móti og gleði var með framkvæmdirnar en þær eru með stærri framkvæmdum sem sveitarfélagið hefur ráðist í.

Það er dr. Maggi Jónsson sem er arkitekt og aðalhönnuður verksins, en hann hefur áður komið að því að hanna viðbyggingar við Grunnskóla Hveragerðis. Hönnunarstjóri var Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur. Kári Sveinbjörn Gunnarsson og Efla verkfræðistofa sáu um verkfræðihönnun.

Skólamörk lokar og lóðin tengist lystigarðinum
Byggingin mun verða á tveimur hæðum og tengjast inn í lystigarðinn Fossflöt. Alls er um að ræða 750 m2 að gólffleti. Byggingin verður staðsteypt, klædd að utan með sléttri álklæðningu.

Loftplata verður steypt með viðsnúnu þaki. Alls er um að ræða 6 kennslustofur ásamt skemmtilegum rýmum sem munu nýtast til fjölbreyttra kennsluhátta. Innifalið í framkvæmdunum eru lóðaframkvæmdir, stígar, gangstéttir og allur frágangur til norðurs ásamt tengingum við lystigarðinn.

Við breytinguna mun Skólamörk lokast. Aðkoma að Sundlauginni í Laugaskarði verður því með nýjum hætti til framtíðar. Verklok eru áætluð í júlí 2021. -gpp

Heimild: Dfs.is -gpp