Home Fréttir Í fréttum Íslandshótel flest tóm og hótelbygging í bið

Íslandshótel flest tóm og hótelbygging í bið

219
0
Mynd: Atelier arkitektar

Davið Torfi Ólafsson, framkvæmdastóri Íslandshótela segir að framkvæmdir við hótelbygginguna í Lækjargötu hafi verið sett í bið út apríl. Óljóst er um framhaldið.

<>

Ef ekkert verður um ferðamenn í sumar sé ljóst að ekki verður hægt að halda úti öllum sautján Íslandshótelunum.

Hótelbyggingin í Lækjargötu í bið
Íslandshótel reka 17 hótel víðsvegar um landið. Fimm þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess er verið að reisa 140 herbergja fjögurra stjörnu hótel við Lækjargötu.

Davíð Torfi segir að nú hafi þær framkvæmdirnar verið settar á bið. „Þetta stopp núna er í gildi út apríl mánuð. Við höfum ekki tekið neinar ákvarðanir um framhaldið ennþá það er svo margt óljóst í þessu.

Við þurfum liggur við að taka einn dag í einu.“
Áður enn framkvæmdir voru stöðvaðar var verið að klára að steypa upp bygginguna og vinna við endurbætur á Vonarstræti 4.

Trúa að ferðaþjónustan rísi aftur
Davíð segir að framkvæmdum hafi seinkað í byrjun vegna fornminjanna sem fundust. Verið er að vinna við útfærslu og frágang þeirra með ríki og borgaryfirvöldum.

„Við erum búin að vera í þessu síðan 1992 og gengið í gengum ýmislegt en auðvitað en ekkert í viðlíka og nú. En við höfum bara mikla trú á íslenskri ferðaþjónustu og vitum að við munum rísa upp aftur.

Vonandi náum við að koma upp á jörðina fljótlega á næsta ári og svo verður bara 2022 gott ár.“

Erfið og þröng staða
Davíð segir að Íslandshótelin séu öll meira og minna lokuð. „Við erum auðvitað með fólk á hlutaleiðinni þannig að við getum alltaf tekið á móti gestum. En við höfum lokað, eins og hér í Reykjavík erum við búin að loka nánast öllum hótelum nema Grand hóteli.“
Örfáir gestir eru á hótelinu segir Davíð.

Fjárhagslega séu Íslandshótel í alvarlegri stöðu. „Við erum bara í sömu stöðu og aðrir við bíðum eftir næsta aðgerðarpakka ríkissjórnarinn til ákveða næstu skref.

Við höfum viljað reyna að verja þessi störf eins og við getum en það er ljóst að ef við erum ekki að fara að sjá neinn túrisma hér á þessu ári þá auðvitað getum við ekki haldið úti þessum hótelum.

Og þar af leiðandi getum við ekki verið með – hjá okkur vinna um 700 manns. Þá er staðan mjög erfið og mjög þröng.

Ætla klára bygginguna og opna hótelið
En þið ætlið samt að halda áfram með bygginguna í Lækjargötu?
„Eins og ég segi hún er bara á bið núna hvort að þessari bið verði síðan framlengt áfram bara get ég ekki svarað á þessu stigi.

Það á eftir að taka ákvörðun um það en við munum klára og við munum opna.“

Mikið hefur verið afbókað í sumar en þó eru ennþá bókanir fyrir júlí og ágúst. Davíð á von á því að þær verði afbókaðar ef ekki verður flogið.

Heimild: Ruv.is