Tilboð opnuð 7. apríl 2020. Strandabyggð óskaði eftir tilboðum í verkið
„Hólmavík – Endurbygging stálþils 2020“.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Reka niður 41 tvöfalda stálþilsplötu af gerð AZ 18-10/10.
Ganga frá stagbita og stögum.
Steypa 10 akkerissplötur.
Steypa um 51 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 1,300 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020.
Framkvæmdir geta ekki hafist fyrr en 7. júní 2020.