Farið verður í framkvæmdir vegna frágangs í nýbyggingarhverfum fyrir 340 milljónir króna í ár.
Um er að ræða meðal annars gerð göngu- og hjólaleiða, gangstétta og frágang gatna. Áætlaður framkvæmdatími er frá maí fram í nóvember.
Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir:
- Úlfarsárdalur – 125 milljónir: Framkvæmdir eru meðal annars gangstéttar, stígagerð, áframhaldandi frágangur á bílastæðalóð við Dalskóla og ræktun í takt við þróun íbúðabyggðar.
- Reynisvatnsás/Grafarholt – 20 milljónir króna: Framkvæmdir eru meðal annars gangstéttar og gerð hellulagðrar götu og torgs.
- Norðlingaholt – 20 milljónir króna: Framkvæmdir eru við gangstétt og þökulögn við Elliðabraut og gerð bílastæða við Móavað.
- Sléttuvegur – 45 milljónir króna: Framkvæmdir eru við gönguleiðir í hverfinu.
- Kirkjusandur – 50 milljónir króna: Framkvæmdir eru meðal annars göngu- og hjólaleiðir og jarðvinna í götum í takt við uppbyggingu hverfis.
- Gönguleiðir og ræktun – 30 milljónir króna: Um er að ræða frágang gönguleiða við Norðurfell, frágangur við Rauðarárstíg 1 og Bleikárgróf 6.
- Hádegismóar – 10 milljónir króna: Framkvæmdir eru gangstéttar og frágangur vegna uppbyggingar á atvinnulóðum.
- Hallar – 10 milljónir króna: Framkvæmdir eru gangstéttar og frágangur vegna uppbyggingar á atvinnulóðum.
- Almannadalur. Hesthúsahverfi og Fjárborg – 30 milljónir króna: Frágangur innan hverfis, reiðstígar og frágangur gatna.
Heimild: Reykjavíkurborg