Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Suðursvæði og Austursvæði 2020, blettanir með klæðingu
Helstu magntölur á ári eru:
Blettun með einföldu lagi klæðingar: 180.000 m2
Flutningur steinefna: 2.100 m3
Flutningur bindiefna: 235 m3
Bindiefni: 235 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.