Vegagerðin óskar eftir tilboðum nýbyggingu vegkafla ásamt smíði á nýrri brú á Djúpvegi (61-35) Um Hattardal. Vegkaflinn er um 2,6 km langur og brúin 17 m löng.
Helstu magntölur vega vegagerðar eru:
- Bergskeringar 8.700 m3
- Fyllingar 49.130 m3
- Ræsalögn 177 m
- Endarfrágangur ræsa 16 stk.
- Styrktarlag 9.100 m3
- Burðarlag 3.160 m3
- Tvöföld klæðing 15.503 m2
- Grjótvörn 4.850 m3
- Vegrið – uppsetning 960 m
- Frágangur fláa 10.600 m2
Helstu magntölur í brúargerð eru:
- Grjótvörn 435 m3
- Gröftur 70 m3
- Steyptir staurar, skurður 42 m3
- Mótafletir 787 m2
- Steypustyrktarjárn 40,6 tonn
- Spennt járnalögn 4,5 tonn
- Steypa 421 m3
- Vegrið á brú 38 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 23. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.