Home Fréttir Í fréttum 15.04.2020 Hafnarfjarðarvegur (40), Vífilsstaðavegur (að Litlatúni) – Lyngás

15.04.2020 Hafnarfjarðarvegur (40), Vífilsstaðavegur (að Litlatúni) – Lyngás

362
0
Mynd: RÚV

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í Garðabæ.

<>

Verkið felst í:

Sumarið 2020

· Gerð hringtorgs á Vífilsstaðaveg við Litlatún
· Breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Litlatúns og Hafnarfjarðarvegar
· Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar
· Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
· Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin

Sumarið 2021

· Breikkun og endurbætur á Hafnarfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar og Lyngás
· Gerð undirganga undir Hafnarfjarðarveg við Hraunsholtslæk
· Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Lyngás
· Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
· Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og veitufyrirtækja.

Helstu magntölur eru:
Vegagerð – Hafnarfjarðarvegur og Vífilsstaðavegur að Litlatúni

Fyllingarefni og burðarlagsefni úr námum 9.300 m³
Stungumalbik 36.140 m²
Eyjur með steinlögðu yfirborði 1 .690 m²
Malbikaðir göngustígar 2.500 m²

Undirgöng undir Hafnarfjarðarveg og stoðveggur við Litlatún

Fylling við steypt mannvirki 3.500 m³
Forsteyptar einingar 32 stk.
Járnalögn, slakbending 22.900 kg
Steypa 280 m³

Veitufyrirtæki, jarðvinna fyrir sameiginlega skurði

Skurðir fyrir veitulagnir 3.270 m
Losun á klöpp í skurðum 50 m³

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 16. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.