Home Fréttir Í fréttum Rýmt fyrir nýjum þjónustukjarna í Ólafsvík

Rýmt fyrir nýjum þjónustukjarna í Ólafsvík

213
0
Framkvæmdir við niðurrif húsanna hófust í gær. Ljósm. Snæfellsbær.

Fyrr í vikunni hófst niðurrif á íbúðarhúsi og bílskúrum við Ólafsbraut 62 og Ólafsbraut 64 í Ólafsvík. Á vef Snæfellsbæjar segir að áætlað sé að vinna við niðurrif standi næstu vikurnar og verði lokið í fyrri hluta aprílmánaðar.

<>

Fyrirhugað er að nýta lóðina til byggingar á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk, eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni. Það er Stafnafell ehf. sem sér um niðurrif húsanna auk efnistöku úr hlíðum sunnanmegin lóðanna tveggja og jarðvegsskipti undir nýja byggingu.

„Vegfarendur eru beðnir að sýna sérstaka aðgát við vinnusvæðið sökum umferðar vinnuvéla,“ segir í tilkynningu frá Snæfellsbæ.

Heimild: Skessuhorn.is