Home Fréttir Í fréttum 10.03.2020 Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, 2. áfangi, Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá –...

10.03.2020 Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, 2. áfangi, Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá – Eftirlit

373
0
Biskupstungnabraut

Vegagerðin býður hér með út eftirlit með breikkun Hringvegar milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis.

<>

Lengd útboðskaflans er 7,1 km.

Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og endurgerð núverandi Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Hluti verksins er bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 6. febrúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. mars 2020.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt umnöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 17. mars 2020 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.