Home Fréttir Í fréttum Milljarðana ætti frekar að nota í fjársvelt heilbrigðiskerfið

Milljarðana ætti frekar að nota í fjársvelt heilbrigðiskerfið

158
0
Samsett mynd: DV og ​Arkþing ehf. og C.F. Møller.

„Bygging nýrra höfuðstöðva ríkisbanka er óþörf og óforsvaranleg,“ segir Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

<>

Þar skrifar Birgir um nýjar 16.500 fermetra höfuðstöðvar Landsbankans sem eiga að rísa við Austurhöfn á einni dýrustu lóð landsins.

Á dögunum var greint frá því að áætlaður kostnaður vegna byggingarinnar væri kominn upp í 11,8 milljarða króna, en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að byggingin myndi kosta um níu milljarða.

Fólki sagt upp og útibúum lokað

Birgir bendir á að fjármálaþjónusta hafi tekið hröðum breytingum og flestir bankar standi nú í aðgerðum til að lækka kostnað. „Helstu leiðir sem farnar hafa verið eru uppsagnir starfsfólks, lokanir útibúa og þróun nýrra tæknilausna,“ segir hann og vísar í Hvítbók um fjármálakerfið máli sínu til stuðnings.

Þá vitnar hann í forstjóra Vinnumálastofnunar sem sagði að á síðastliðnum fjórum árum hafi um 800 manns misst vinnuna í bankastarfsemi.

Landsbankinn er 98 prósent í eigu ríkisins og hefur Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, sagt að bankinn sé í almennum hagræðingaraðgerðum og starfsfólki hafi fækkað mikið síðustu ár. Birgi þykir þetta einkennilegt í ljósi framkvæmdanna við Hafnartorg.

„Þrátt fyrir mikla fækkun starfsfólks og gjörbreytt starfsumhverfi stendur Landsbankinn í stórframkvæmd á Hafnartorgi upp á 17.000 fermetra og byggir nýjar höfuðstöðvar fyrir milljarða króna á einni dýrustu lóð landsins.

Framkvæmdin hækkar stöðugt í verði og fyrir skömmu bárust fréttir þess efnis að nú þegar verktakinn er rétt búinn með grunninn hefur verkið farið 1,8 milljarða króna fram úr áætlun, sem stendur í 12 milljörðum og á eflaust eftir að hækka enn frekar.“

Málið óþægilegt

Birgir segist enn fremur hafa lagt fram skriflega fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um fyrirhugaða byggingu nýrra höfuðstöðva. „Spurði ég um áætlaðan byggingarkostnað, hvort til greina kæmi að hætta við bygginguna og selja lóðina.

Auk þess spurði ég ráðherra hvort hann teldi framkvæmdin skynsamlega af hálfu ríkisbanka, ekki síst í ljósi mikilla breytinga á bankaþjónustu og fækkun starfsmanna. Skemmst er frá því að segja að ráðherra hefur ekki enn svarað fyrirspurninni. Lýsir þetta skorti á virðingu gagnvart Alþingi og að málið er óþægilegt fyrir hann.“

Birgir segir  vandséð hvernig hægt sé að réttlæta að ríkisbanki setji vel á annan tug milljarða í byggingu, sem hann þarf ekki á að halda.

Auk þess muni bankinn aðeins nota um helming byggingarinnar en leigja þúsundir fermetra út frá sér til verslunar og þjónustu. Birgir segir að fjármálaráðherra hefði getað komið í veg fyrir þessa „dýru og taktlausu“ framkvæmd en hafi skort kjark til þess. Birgir endar grein sína svo á þessum orðum:

„Nær væri að þeir milljarðar sem fara í þetta gæluverkefni yrðu settir í fjársvelt heilbrigðiskerfi.“

Heimild: Dv.is