Home Fréttir Í fréttum Milljarðakröfur fljúga á víxl á Bakka

Milljarðakröfur fljúga á víxl á Bakka

135
0
Mynd: Haraldur Jónasson

Deila um framkvæmdakostnað PCC á Bakka gæti verið á leið fyrir gerðardóm. Verktakinn vill sex milljarða.

<>

Enn er deilt um endanlegan framkvæmdakostnað við kísilverið PCC á Bakka sem kostaði um 37 milljarða í byggingu.

Þýska móðurfélag PCC á Bakka, PCC SE, hefur krafið verktakann sem byggði verksmiðjuna, SMS Siemag, um tafabætur.

Félagið bókfærði 9,7 milljóna evra tekjur, um 1,3 milljarða króna, á fyrri helmingi árs 2018 í tafabætur.

Upphaflega stóð til að verksmiðjan væri afhent seint á árinu 2017. Það tafðist hins vegar og framleiðsla hófst ekki fyrr en vorið 2018.

Verksmiðjan var ekki afhent formlega fyrr en seint á síðasta ári.

Vegna tafanna tók PCC yfir 9,4 milljóna evra bankaábyrgð sem SMS hafði lagt fram í tengslum við framkvæmdirnar.

SMS telur það ekki standast skoðun og fer fram á að fá þá fjárhæð endurgreidda og hefur hótað að senda deiluna fyrir gerðardóm.

SMS beri ekki ábyrgð á auknum kostnaði og hefur alls gert mótkröfu á PCC upp á 44 milljónir evra, um sex milljarða.

PCC hefur hafnað kröfunni og skoðar nú lagalegan rétt sinn um að gera kröfu um frekari bætur frá SMS.

Rúnar Sigurpálsson, framkvæmdastjóri PCC á Bakka, segir viðræður standa yfir. „Menn eru að tala saman og vilja síður að málið fari fyrir dómstóla,“ segir Rúnar.

Heimild: Vb.is