Home Fréttir Í fréttum 04.03.2020 Akureyrarbær. Bygging nýs leikskóla við Glerárskóla

04.03.2020 Akureyrarbær. Bygging nýs leikskóla við Glerárskóla

288
0

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í verklegar framkvæmdir við byggingu nýs leikskóla við Glerárskóla. Húsið verður staðsett á suðvestur hluta lóðarinnar og verður samtengt við núverandi mannvirki á lóðinni með tengigangi.

<>

Leikskólinn verður á tveimur hæðum og er alls um 1.450 m². Húsnæðið gerir ráð fyrir 7 deilda leikskóla þar sem 2 deildir eru hugsaðar sem ungbarnaleikskóli. Innan gengt verður frá leikskólanum yfir í núverandi íþrótthús, sundlaug og grunnskólann sjálfan.
Helstu verkþættir eru:
• Jarðvinna
• Lóðarvinna
• Uppsteypa og stálburðarvirki
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss og uppsetning á föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna og rafkerfa.

Útboðsgögn verða aðgengileg í gegnum tölvupóstfangið umsarekstur@akureyri.is frá kl.14:00 þann 12. febrúar 2020.
Opnun tilboða fer fram kl. 13:00 þann 4. mars 2020 á skrifstofu Umhverfis- og mannvirkjasviðs á 4. hæð í Ráðhúsi Akureyrar.