Home Fréttir Í fréttum 09.03.2020 Úlfarsárdalur. Fullnaðarfrágangur bókasafns, menningarmiðstöðvar og sundlaugar. EES útboð.

09.03.2020 Úlfarsárdalur. Fullnaðarfrágangur bókasafns, menningarmiðstöðvar og sundlaugar. EES útboð.

776
0
Teikn­ing af íþrótta-, menn­ing­ar- og skóla­miðstöðinni sem reisa á í Úlfarsár­dal. Teikn­ing/​Reykja­vík

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

 Úlfarsárdalur. Fullnaðarfrágangur bókasafns, menningar-miðstöðvar og sundlaugar. EES útboð nr. 14722.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is –  Frá kl. 14:00,  mánudaginn 3. febrúar 2020. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  Kl. 14:00 þann 9. mars 2020.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is

 

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í fullnaðarfrágangi innanhús á bókasafni, menningar- og félagsmiðstöðvar, tónlistarskóla, og innisundlaugar.  Einnig fullnaðarfrágangi útisundlaugar.
Byggingin  er sunnan við Úlfarsbraut og austan við núverandi grunnskólabyggingu Dalsskóla sem er 2. áfangi í byggingakeðju mannvirkjanna við Úlfarsbraut 122-124  í Úlfarsárdal.

Helstu verkþættir eru:
Frágangur innanhúss:
  Múrverk, léttir innveggir og klæðningar, frágangur gólfa og veggja, frágangur lofta, innihurðir, glerveggir, hurðir, málun ásamt innréttingum.
Frágangur utanhúss: Yfirborðsfrágangur útisundlaugasvæðis
Raflagnir: Lágspennukerfi, lýsingakerfi, smáspennukerfi, hússtjórnarkerfi, innbrota- og aðgangskortakerfi, myndavélaeftirlitskerfi.
Lagnir: Neysluvatnslagnir, gólfhitalagnir, þrifatæki, vatnsúðakerfi OH1, loftræsikerfi og tæknikerfi sundlauga.