Home Fréttir Í fréttum Nýr sautján hæða hótelturn kallast á við Hallgrímskirkju

Nýr sautján hæða hótelturn kallast á við Hallgrímskirkju

285
0
Hótelið rís á horni Skúlagötu og Vitastígs og verður opnað á síðari helmingi næsta árs. Arkitekt/Tony Kettle

Sautján hæða hótelturn verður ein svipmesta bygging miðborgar Reykjavíkur en framkvæmdir eru hafnar á horni Skúlagötu og Vitastígs.

<>

Myndir af fyrirhugaðri byggingu voru sýndar í fréttum Stöðvar 2.

Þetta 203 herbergja hótel rís á vegum Radisson-hótelkeðjunnar og er áformað að það verði tilbúið á síðari hluta næsta árs.

Það verður rekið undir RED-vörumerki Radisson, sem höfðar til yngri aldurshópa með líflegri þjónustu, frumlegri hönnun og fjölbreyttu litavali.

Skoski arkitektinn Tony Kettle segist við hönnun þess hafa sótt innblástur í sögu íslenskrar byggingarlistar og jarðfræði landsins en húsið kallast á við Hallgrímskirkju og rauðir og svartir litir eiga að vísa til eldvirkni og hraunrennslis.

Veröndin á þakinu verður einn besti útsýnisstaður Reykjavíkur. Þar verður RED Sky bar.
Arkitekt/Tony Kettle

„Við sem stöndum að byggingunni erum spennt fyrir verkefninu og stolt af hönnuninni,“ segir Tom Flanagan Karttunen, aðstoðarforstjóri hjá Radisson Hotel Group í Norður-Evrópu.

Hann segir hönnun og skipulag tengja heimamenn og ferðamenn saman um göngustíg í gegnum hótelið, veitingastað á jarðhæð með götutorgi á horni Skúlagötu og Vitastígs ásamt Red Sky bar á efstu hæðinni og útsýnisverönd á þaki byggingarinnar.

„Þetta verkefni er sennilega það flottasta sem ég hef gert,“ segir Kári Arngrímsson, byggingastjóri verkefnisins, og segir bygginguna sérstaka og glæsilega.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2

Heimild: Visir.is