Home Fréttir Í fréttum 07.01.2020 Glerskipti vegna skemmdarverka eða viðhald

07.01.2020 Glerskipti vegna skemmdarverka eða viðhald

276
0
Mynd: Mbl.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Glerskipti vegna skemmdarverka eða viðhald – útboð nr. 14708

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurglerjun í ýmsum fasteignum borgarinnar vegna skemmdaverka eða viðhalds á gleri. Um er að ræða áætlað magn í ótilgreindum stofnunum. Þó skal gera ráð fyrir að stærsti hluti glerskipta verði í grunnskólum borgarinnar. Þá má vænta nokkurra glerskipta í leikskólum auk annarra fasteigna.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 10. desember 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu.

Fyrirspurnir sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. janúar 2020.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is