Home Fréttir Í fréttum 07.01.2020 Vegmálun Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði 2020-2022

07.01.2020 Vegmálun Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði 2020-2022

102
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingu akbrauta með málningu og tilbúnar stakar merkingar árin 2020-2022.

<>

Um er að ræða málun á Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði Vegagerðarinnar.

Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru:

Flutningur vinnuflokks 6.000 km
Málaðar miðlínur 6.000.000 m
Málaðar kantlínur 5.700.000 m
Biðskylduþríhyrningar 67,5 m2.
Þrengingarmerki við einbreiðar brýr 420 m2.
Tilbúnar áletranir 112,5 m2

Verki skal að fullu lokið 1. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  2. desember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. janúar 2020.

Ekki verður haldnn sérstakurr opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um
nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.