Home Fréttir Í fréttum 05.12.2019 Atvinnulóð í Garðabæ – Garðahraun 1 í Molduhrauni

05.12.2019 Atvinnulóð í Garðabæ – Garðahraun 1 í Molduhrauni

312
0

Garðabær auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði á lóðinni Garðahraun 1 á athafnasvæðinu í Molduhrauni.

<>

Stærð lóðarinnar er um 15.000 m2 og liggur vestast í Molduhrauni við mörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Heildar byggingarmagn er um 12.000 m2, í samræmi við nýtingarhlutfall lóðarinnar sem er 0,8 og skilgreint í ný endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns.

Tilboð í byggingarrétt á lóðinni skulu berast Garðabæ eigi síðar en 5. desember 2019.
Skulu þau berast rafrænt í gegnum þjónustugáttina Minn Garðabær.  Innskráning hér.
Til að skrá sig inn á Minn Garðabæ þarf rafræn skilríki eða íslykil.  (Rafrænt form til útfyllingar ,,Kauptilboð í byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði” má finna á Mínum Garðabæ undir flipanum ,,Umsóknir” og þar undir flipanum  ,,14. Lóðir”.)

Hægt er að fá aðstoð vegna rafrænnar umsóknar í þjónustuveri Garðabæjar.

Gögn sem fylgja með auglýsingunni má nálgast hér fyrir neðan.  Til að sækja gögnin þarf að gefa upp nafn og netfang til að hægt sé að senda t-póst á viðkomandi ef einhverjar breytingar verða gerðar á gögnunum, s.s. sem fyrirspurnir og svör.