Home Fréttir Í fréttum 17.12.2019 Hringvegur (1) um Steinavötn og Fellsá – Eftirlit

17.12.2019 Hringvegur (1) um Steinavötn og Fellsá – Eftirlit

130
0
Mynd: mbl.is/​Sig­urður Bogi

Vegagerðin býður hér með út eftirlit með smíði nýrra brúa á Steinavötn og Fellsá ásamt rifi á steyptri brú yfir Steinavötn, vegtengingu við nýjar brýr, byggingu bráðabirgðahjáleiðar og tengingu bráðabirgðabrúar við Fellsá  og rifi á núverandi
brú yfir Fellsá ásamt frágangi vegsvæðis.

<>

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Forvalsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. nóvember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. desember2019.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt umnöfn bjóðenda í útboðinu.

Þriðjudaginn 17. desember 2019 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.