Home Fréttir Í fréttum FH vígði Skessuna á 90 ára afmælinu

FH vígði Skessuna á 90 ára afmælinu

344
0
Skjáskot af Vísir.is

Fimleikafélag Hafnarfjarðar hélt í gær upp á 90 ára afmæli sitt.

<>

Við það tilefni var nýtt knatthús, Skessan, vígt í Kaplakrika.

„Afmælisbarninu heilsast ótrúlega vel. Það er öðruvísi með íþróttafélög en mannslíkamann; þau batna eftir því sem árunum fjölgar,“ sagði Viðar Halldórsson, formaður FH, í samtali við Arnar Björnsson í Sportpakkanum.

Viðar segir að Skessan, sem er knatthús í fullri stærð, gjörbreyti allri aðstöðu fyrir FH-inga. Framkvæmdir við húsið hófust fyrir ári síðan.

„Heildarkostnaður við húsið verður í kringum 820 milljónir.

Í næstu viku verður farið í viðbyggingu við húsið, þar sem eru búningsklefar og fleira.

Vonandi verður það tilbúið undir áramótin,“ sagði Viðar.

Aðspurður um hver staða FH á 100 ára afmælinu verði kvaðst Viðar bjartsýnn.

„Ég held að FH verði öflugra félag. Svæðið verður komið í fulla notkun og enn glæsilegra en það er í dag. Vonandi verður barna- og unglingastarfið öflugt sem er aðalatriðið,“ sagði Viðar.

Heimild: Visir.is