Home Fréttir Í fréttum 12.11.2019 Seltjarnarnes – sjóvarnir 2019

12.11.2019 Seltjarnarnes – sjóvarnir 2019

317
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á Seltjarnarnesi. Verkið felst í byggingu sjóvarnar við Ráðagerði og við Nesvöll, heildarlengd sjóvarna er um 220 m.

<>

Útboðið nefnist:
Seltjarnarnes – sjóvarnir 2019

Helstu magntölur:

Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 1.500 m3
Upptekt og endurröðun grjóts um 350 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. apríl 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 24. október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. nóvember 2019.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.