Home Fréttir Í fréttum Bjarg stefnir á að byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum

Bjarg stefnir á að byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum

233
0
Myndir: Yrki arkitektar

Leiðarljós félagsins er að byggja vel hannað, hagkvæmt og endingargott leiguhúsnæði. Félagið hefur samið við hin ýmsu sveitarfélög um byggingu og á í viðræðum við önnur sveitarfélög.

<>

Bjarg stefnir á að byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum. 68 íbúðir eru þegar komnar í útleigu, 563 eru í bygg­ingu og tæplega 500 eru í hönnunarferli.

Framkvæmdir hafnar
Móavegur 2-12, Grafarvogi í Reykjavík, 124 íbúðir. Fyrsta skóflustunga var tekin í febrúar 2018 og fyrstu íbúðar voru afhentar nýjum leigutökum í júní 2019. Áætluð verklok er í janúar 2020.

Urðarbrunnur 130-132 og 33, Úlfarársdal í Reykjavík, 66 íbúðir. Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2018 og fyrstu íbúðar voru afhentar nýjum leigutökum í ágúst 2019. Áætluð verklok er í apríl 2020.

Akranes, 33 íbúðir að Asparskógum 12, 14 og 16. Fyrsta skóflustunga var tekin í október 2018 og voru íbúðir afhentar nýjum leigutökum í júní 2019 og júlí 2019.

Hraunbær, Árbæ, Reykjavík, 79 íbúðir. Fyrsta skóflustunda tekin í maí 2019. Áætlað er að fyrstu íbúðir fari í útleigu 1. nóvember 2020.

Hallgerðargata, við Kirkjusand, í Reykjavík. 64 íbúðir. Fyrsta skóflustunda tekin í júní 2019. Áætlað er að fyrstu íbúðir fari í útleigu um sumarið 2020.

Akureyri, 32 íbúðir (í Guðmanns­haga 2). Fyrsta skóflustunda tekin í júní 2019. Áætlað er að fyrstu íbúðir fari í útleigu haustið 2020.

Silfratjörn/Leirtjörn, Úlfarársdal í Reykjavík. 66 íbúðir. Fyrsta skóflustunda tekin í júní 2019. Áætlað er að fyrstu íbúðir fari í útleigu haustið 2020.

Framkvæmdir í undirbúningi
Bryggjuhverfi, Reykjavík. 100 íbúðir. Í undirbúningi.
Vogabyggð, Gelgjutanga, Reykjavík. 60 íbúðir. Í undirbúningi.
Skerjafjörður, Reykjavík. 80 íbúðir. Í undirbúningi.
Sandgerði, 11 íbúðir (sunnan Sandgerðisvegar). Í undirbúningi.
Þorlákshöfn, 13 íbúðir (við Sambyggð). Í undirbúningi.
Selfoss, 26 íbúðir (í Björk). Í undirbúningi.
Hafnarfjörður, (Hamranes). 150 íbúðir. Í undirbúningi.

 

Heimild: Bjarg íbúðarfélag