Home Fréttir Í fréttum 11.11.2019 Uppsteypa meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut. Forval

11.11.2019 Uppsteypa meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut. Forval

591
0

Ríkiskaup f.h. Nýs Landspítala ohf. óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í útboði á uppsteypu meðferðarkjarna, sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

<>

Hér er um að ræða opið forval sem er auglýst í stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Að loknu forvali mun verkkaupi velja fyrirtæki úr hópi umsækjenda til þátttöku í lokuðu útboði.

Óskað er eftir umsóknum frá aðilum (einum eða fleiri í samstarfi) sem geta tekið að sér allt verkið en einnig frá aðilum, sem telja sig geta unnið ákveðinn hluta þess.

Í forvalsgögnum eru skilgreind skipting á umfangi sem umsóknir aðila skulu miðaðir við (áfangaskipting).

Nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.

Leiðbeiningar varðandi kerfið má nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.