Home Fréttir Í fréttum Ísafjarðarbær: Útboð á fjölnota knattspyrnuhúss samþykkt

Ísafjarðarbær: Útboð á fjölnota knattspyrnuhúss samþykkt

206
0
Mynd: BB.is

Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að farið verði í útboð á fjölnota knattspyrnuhúsi á Ísafirði.

<>

Samkvæmt mati nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss eru líkur á því að hægt verði að hefjast handa við byggingu hússins sumarið eða haustið 2020 og að það klárist um áramót 2020/2021.

Þetta miðar við núverandi tímasetningu og að útboð fari af stað sem fyrst.
Húsið sem nefndin lagði til að verði byggt er 50×70 metra einangrað og upphitað hús.

Samkvæmt tillögu verður boðið út á evrópska efnahagssvæðinu með skilyrðum um hámarksverð að upphæð 380.000.000 kr. og að húsinu verði skilað fullbúnu.

Lagt er til að í útboðinu verði ákveðin skilyrði um útbúnað, svo sem geymslu, lýsingu, gervigras, hlaupabraut og fleira, en einnig að hægt verði að bjóða í valkvæða eiginleika, svo sem hljóðkerfi, áhorfendabekki og klifurvegg.

Útboðsgögn hafa verið útbúin í samstarfi við Ríkiskaup.

Heimild: BB.is