Home Fréttir Í fréttum Tryggja viðbótar­fjármagn í vik­unni

Tryggja viðbótar­fjármagn í vik­unni

118
0
Höfuðstöðvar GAMMA við Garðastræti í Reykja­vík. mbl/​Arnþór Birk­is­son

GAMMA stefn­ir á að tryggja Upp­hafi, fast­eigna­fé­lagi fjár­fest­inga­sjóðs GAMMA, viðbótar­fjármögn­un í þess­ari viku og tryggja þar með rekst­ur fé­lags­ins. Þetta herma heim­ild­ir mbl.is.

<>

Máni Atla­son, fram­kvæmda­stjóri GAMMA, gat lítið tjáð sig um fjár­mögn­un­ina þegar mbl.is náði tali af hon­um í dag.

„Eins og við höf­um áður gefið út náðum við góðum áfanga í síðustu viku með samþykki skulda­bréfa­eig­enda. Við mun­um vinna áfram í mál­inu og kapp­kosta að ljúka þessu eins fljótt og hægt er,“ seg­ir Máni.

Í byrj­un mánaðar kom fram að tryggja þyrfti nýja fjár­mögn­un til að forða Upp­hafi frá falli. Fé­lagið er með 277 íbúðir í bygg­ingu. Eigið fé Upp­hafs hafði verið of­metið og kostnaður van­met­inn.

Skulda­bréfa­eig­end­ur Upp­hafs samþykktu skil­mála­breyt­ing­ar á skuld­um fé­lags­ins í síðustu viku en þær breyt­ing­ar voru nauðsyn­leg­ar til að ljúka viðbót­ar­fjár­mögn­un með nýju skulda­bréfi að fjár­hæð eins millj­arðs króna.

Máni gat ekki svarað því hvort taf­ir yrðu á bygg­ingu íbúðanna vegna fjár­hags­vand­ræðanna.„Það myndi alltaf vera til bóta að tryggja fjár­hag­inn til lengri tíma.“

Heimild: Mbl.is