Home Fréttir Í fréttum VHE í járnum vegna Upphafs

VHE í járnum vegna Upphafs

692
0
Mynd: Visir.is

Verktaka- og þjónustufyrirtækið VHE er í erfiðri fjárhagslegri stöðu eftir að upp komst að stór samstarfsaðili þess, Upphaf fasteignafélag, væri í mun verri stöðu en áður hafði verið haldið.

<>

Samstarf Upphafs og VHE hefur verið náið undanfarin ár og meðal annars stefndu fyrirtækin í sameiningu að umfangsmikilli uppbyggingu í Skarðshlíð, nýju hverfi í Hafnarfirði.

Miklar tafir hafa verið á þeim fyrirætlunum. Eins og greint var frá í vikunni var eigið fé sjóðsins GAMMA: Novus fært niður úr 4,4 milljörðum í 42 milljónir í vikunni. Vandræði sjóðsins má rekja til erfiðleika dótturfélags þess, Upphafs fasteignafélags.

Eigið fé þess er uppurið og nú er þess freistað að afla eins milljarðs króna frá skuldabréfaeigendum til þess að klára útistandandi verkefni félagsins. VHE var byggingaraðili 129 íbúða Upphafs í Kársnesi.

Upphaflega stóð til að sala íbúðanna myndi hefjast í lok árs 2018 en þær áætlanir hafa dregist á langinn.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni hunsuðu stjórnendur Upphafs kostnaðaráætlun frá verkfræðistofunni Ferli og gerðu eigin áætlun innanhúss. Sú áætlun reyndist vanmeta kostnaðinn við byggingu íbúðanna verulega.

Engar framkvæmdir hafa staðið yfir á reitnum á Kársnesi síðan í júní í sumar. Þessu slæma höggi mátti VHE ekki við. Segja má að fyrirtækið hafi róið lífróður frá efnahagshruni en þá stökkbreyttust erlendar skuldir félagsins.

Fyrirtækið rambaði á barmi gjaldþrots eins og svo mörg verktakafyrirtæki.

Morgunblaðið fjallaði um stöðu fyrirtækisins í mars 2018 og greindi frá því að VHE hefði um alllangt skeið átt í erfiðleikum með að standa skil á greiðslum til birgja og helsta lánveitanda síns, Landsbankans.

Lausafé hafði skort til að standa undir af borgunum á lánum á réttum tíma og greiða undirverktökum vegna þeirra verka. Umsvif VHE eru mikil en að sama skapi er reksturinn í járnum.

Félagið velti um 9,6 milljörðum króna árið 2018 og nam rekstrarhagnaður þess um 653 milljónum króna.

Þegar leiðrétt hafði verið fyrir fjármagnsgjöldum og tekjuskattsinneign var hagnaður ársins 31 milljón króna. Þá skuldar félagið tæpa 9 milljarða króna.

Eigendur VHE eru systkinin Unnar Steinn, Einar Þór og Hanna Rún Hjaltabörn auk foreldra þeirra. Unnar Steinn er stjórnarformaður fyrirtækisins og á 80 prósenta hlut í því en Einar Þór, framkvæmdastjóri þess, átta prósent. Hanna Rúna á sex prósent og foreldrar þeirra sín þrjú prósentin hvort.

Systkinin eiga einnig fyrirtækið Nesnúp ehf. í svipuðum hlutföllum og VHE. Það fyrirtæki var hlutskarpast í útboði Hafnarfjarðarbæjar um fjórar fjölbýlishúsalóðir í nýju Skarðshlíðarhverfi bæjarins í lok árs 2016.

Hreppti fyrirtækið lóðirnar Apalskarð 2, Apalskarð 6, Bergsskarð 1 og Geislaskarð 2.

Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ var kaupverð lóðanna 661 milljón króna. Tæpu ári síðar keypti félagið Skarðshlíð ehf. lóðirnar út úr Nesnúpi en kaupverð lóðanna var 691 milljón króna.

Skarðshlíð er í 50 prósent eigu Upphafs og 50 prósent eigu VHE. Þá undirritaði félagið einnig leigusamninga um tvær aðrar lóðir í hverfinu, Hádegisskarð 12 og 16, til 75 ára.

Framkvæmdir á lóðunum eru skammt á veg komnar og óvíst hvað verður. Stjórnarformaður VHE, Unnar Steinn Hjaltason, vildi ekki ræða stöðuna sem upp er komin við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað.

Heimild: Visir.is