Home Fréttir Í fréttum Bjarg úthlutaði 100 íbúðum – Hægt að sækja um á netinu

Bjarg úthlutaði 100 íbúðum – Hægt að sækja um á netinu

125
0
Fjölskylda Katrínar Einarsdóttur, fyrsta leigjanda Bjargs, var ekki lengi ein því um 100 fjölskyldur til viðbótar hafa nú fengið leigt hjá Bjargi.

Bjarg íbúðafélag hefur nú úthlutað 100 íbúðum í Reykjavík og á Akranesi og er áformað að afhenda 50 íbúðir til viðbótar það sem eftir er árs og verða þá íbúar orðnir á fjórða hundrað.

<>

Fyrsti leigjandi félagsins fékk afhenta íbúð við Móaveg í Grafarvogi um miðjan júní og frá þeim tíma hefur leigjendum heldur betur fjölgað.

Framkvæmdir á vegum Bjargs hafa gengið afar vel það sem af er ári.

Félagið er nú með um 400 íbúðir í byggingu. Þær eru flestar í Reykjavík; við Móaveg í Grafarvogi, Urðarbrunn og Silfratjörn í Úlfarsárdal, Hallgerðargötu við Kirkjusand og við Hraunbæ.

Þá er 32 íbúða fjölbýlishús í byggingu við Guðmannshaga á Akureyri.
Til viðbótar við þetta eru framkvæmdir í undirbúningi við 463 íbúðir til viðbótar.

Þær íbúðir verða reistar í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi, á Gelgjutanga í Vogabyggð, í Skerjafirði, á Hamranesi í Hafnarfirði, í Þorlákshöfn, i Sandgerði og í nýju Björkuhverfi á Selfossi.

Þá eiga forsvarsmenn Bjargs í viðræðum við önnur sveitarfélög á landinu um byggingu leiguíbúða, en félagið leggur áherslu á að eiga í góðu samstarfi við sveitarfélög og verktaka alls staðar á landinu.

Frekari uppbyggingin er háð veitingu stofnframlaga sem ríki og sveitafélög leggja til verkefna félagsins. Fjármagn til stofnframlaga hefur verið af skornum skammti og umsóknir eru langt umfram fé til úthlutunar.

Í kjarasamningum 2015 var lofað að tveir þriðju hlutar stofnframlaga myndi renna til íbúða fyrir tekjulægri einstaklinga og fjölskyldna á vinnumarkaði.

Það hefur ekki gengið eftir en vonir standa til að á haustþingi verði sú ráðstöfun staðfest.

Hægt að sækja um íbúð á netinu
Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignastofnun stofnuð af BSRB og Alþýðusambandi Íslands. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði, félagsmönnum í BSRB og ASÍ, aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Hægt er að sækja um íbúðir á vef Bjargs. Þar hefur verið sett upp reiknivél þar sem áhugasamir geta kannað hvort þeir falli í þann hóp sem getur leigt íbúðir hjá félaginu.

Heimild: Frettatiminn.is