F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sjálfvirk almenningssalerni í Reykjavík, EES útboð 14650.
Verkið felst í útvegun, uppsetningu, rekstri, viðhaldi, upprifi og frágangi í samningslok á sjálfvirkum almenningssalernum í Reykjavíkurborg. Um er að ræða alls sex almenningssalerni.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 16:00, þriðjudaginn 16. september 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu.
Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 22. október 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því.
Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is