Byggingafélagið Þingvangur hefur sent fyrirspurn varðandi uppbyggingu leiguhúsnæðis til skammtímanota á tveimur lóðum við Köllunarklettsveg.
Afgreiðslu erindisins var frestað á síðasta fundi í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Umrædd lóð er í Laugarnesi og óskar Þingvangur eftir því að fá að setja allt að 550-600 innréttaðar íbúðaeiningar á lóðina. Mögulegt sé að hafa húsnæðið tilbúið á nokkrum mánuðum.
Óskin sé sett fram í samræmi við stefnumörkun átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum um að reisa íbúðarhúsnæði til skammtímanota til að bregðast við tímabundnum vanda.
Heimild: Mbl.is