Home Fréttir Í fréttum 11 milljarða þrot JB Byggingafélags

11 milljarða þrot JB Byggingafélags

1265
0
Mynd:Haraldur Guðjónsson/vb.is

2 milljarðar fengust upp í veðkröfur. Fyrirtækið var áberandi í byggingariðnaði á árunum fyrir hrun.

<>

Skiptum á þrotabúi JB Byggingafélags er lokið, að því er kemur fram í Lögbirtingarblaðinu, en lýstar kröfur í búið námu tæplega 12 milljörðum.

Þar af námu samþyktar kröfur um 10,7 milljörðum. Byggingafélagið var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2010.

Skiptum lauk á þann veg að tæplega 2 milljarðar fengust greiddir upp í veðkröfur. Þá greiddust forgangskröfur sem námu tæplega 1,2 milljörðum að fullu, auk þess sem tæplega 270 þúsund krónur fengust greiddar upp í almennar kröfur.

Fyrrnefnt byggingarfélag, sem var dótturfélag Innova, var stórtækt í byggingariðnaði á árunum fyrir hrun. Innova var í eigu Engilberts Runólfssonar en fyrirtækið var rétt eins og dótturfélagið tekið til gjaldþrotaskipta árið 2010.

Heimild: Vb.is