Fyrri opnunarfundur tilboða í for- og verkhönnun Þverárfjallsvegar (73) um Refasveit og Skagastrandarvegar (74) um Laxá.
Um er að ræða:
- Um 11,8 km stofn- og tengivegi (8,5 km á Þverárfjallsvegi og 3,3 km á Skagastrandarvegi).
- Tíu minni vegtengingar/heimreiðar, samtals um 4,5 km.
- Þrenn vegamót við stofn- og tengivegi
- Þrjú búfjárræsi
- Eftirlitsstaður til umferðareftirlits
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Forhönnun skal lokið fyrir 10. janúar 2020 og verkhönnun skal lokið fyrir 15. maí 2020
Lesið var upp hverjir skiluðu inn tilboðum en á síðari opnunarfundi, sem verður þriðjudaginn 27. ágúst 2019 kl. 14:15, verða lesin upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.
Bjóðandi |
Efla hf., Reykjavík |
Mannvit hf., Kópavogi |
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík |
Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf, Kópavogi |
Hnit Verkfræðistofa hf., Reykjavík |
Verkís hf., Reykjavík |