Home Fréttir Í fréttum Dýrafjarðargöng sett einu ári aftar í samgönguáætlun

Dýrafjarðargöng sett einu ári aftar í samgönguáætlun

136
0
Dýrafjarðargöng

Ný samgönguáætlun til næstu fjögurra ára var nýlega lögð fram á Alþingi. Var það vonum seinna, því upphaflega átti að leggja hana fram fyrir ári síðan. Áætlunin nær til áranna 2015-2018. Í áætluninni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Dýrafjarðargöng hefjist ekki fyrr en árið 2017. Það er ári síðar en gert var ráð fyrir í áætlun sem áður var samþykkt á árum síðustu ríkisstjórnar. Allar áætlanir liggja fyrir um Dýrarfjarðargöng, umhverfismat hefur þegar farið fram og ekkert eftir nema setja framkvæmdina í útboð. Það verður væntanlega gert árið 2016, ef áætlanir standast.

<>

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti bókun á síðasta fundi sínum þar sem tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2015-2018, þingskjal 1341, var til umsagnar. Í bókun bæjarstjórnar segir: „Bæjarstjórn vill enn fremur benda á að hvert ár sem líður án þess að vinna hefjist við Dýrafjarðargöng er verulegt tjón fyrir efnahagssvæðið á Vestfjörðum og tefur aðra uppbyggingu á svæðinu, eins og t.d. bætt raforkuöryggi, uppbyggingu í ferðaþjónustu og fiskeldi og samstarf fyrirtækja. Því er nauðsynlegt að þeim framkvæmdum verði flýtt um eitt ár frá því sem fram kemur í tillögunni.”

Ríkið tekur ekki þátt í hafnarbótum
Þá var í bókun bæjarstjórnar tekið undir ályktun Hafnarstjórnar vegna þeirrar útreiðar sem Ísafjarðarhafnir fá í samgönguáætlun, sem er mjög alvarlegt mál og ekki til þess fallin að styrkja undirstöður sveitarfélags sem býr í erfiðu umhverfi. Sú staðreynd að ríkið tekur ekki þátt í brýnum hafnarbótum eins og lög gera ráð fyrir hefur verið Ísafjarðarbæ þungur baggi og verður því ástandi að linna.
Einnig er vert að benda á að ef ekki verður lagt fé í viðhald þeirra vega sem elstir eru og verst farnir í Ísafjarðardjúpi þá er hætt við að þeir verði alfarið ónýtir þegar tímabili áætlunarinnar lýkur.

Heimild: Skutull.is