Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Bolungarvíkurhöfn – Brjóturinn, endurbygging stálþils 2019

Opnun útboðs: Bolungarvíkurhöfn – Brjóturinn, endurbygging stálþils 2019

220
0

Tilboð opnuð 12. júní 2019. Hafnarsjóður Bolungarvíkur óskaði eftir tilboðum í endurbyggingu stálþils við Brótinn í Bolungarvíkurhöfn.
Helstu verkþættir eru:

<>

· Prufurekstur, sprengd eða rippuð rás fyrir þil ef þörf reynist á.
· Rekstur 78 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga og fylling innan við þil.
· Taka upp fríholt, brjóta og fjarlægja kant með pollum og festihringjum alls um 97 m.
· Brjóta og fjarlægja steypta þekju. Aftengja og taka upp raf-, og vatnslagnir.
· Leggja vatnslagnir í bryggjuna og ídráttarrör fyrir rafstrengi
· Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.
· Fylla í skarð milli gamla stálþils og grjótgarðs norðaustan við stálþilið.
· Taka upp núverandi grjótvörn og endurraða grjótvörn utan á nýja fyllinguna.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2019.