Home Fréttir Í fréttum 19.06.2019 Gervigrasvellir Leiknis og Þróttar. Endurnýjun vallarlýsingar

19.06.2019 Gervigrasvellir Leiknis og Þróttar. Endurnýjun vallarlýsingar

142
0
Mynd: Getty Images

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Gervigrasvellir Leiknis og Þróttar – Endunýjun vallarlýsingar, útboð nr. 14568.

Verkið felst í:
Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á gervigrasvöllum Leiknis og Þróttar í Reykjavík.

Verktaki skal hanna og skila útreikningum sem sýna að lágmarkskröfum sé náð. Verktaki skal hanna lýsinguna í samræmi við kröfur staðalsins ÍST EN 12193:2007 um lýsingu á fótboltavelli utanhúss.

Gert er ráð fyrir að endurnýta núverandi ljósamöstur vallanna, ásamt þeim lögnum sem fyrir eru.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00, 4. júní 2019.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. júní 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is