Útboð
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Uppbygging fráveitukerfis á Höfn – Jarðvinna og lagnir-1. áfangi“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða að koma fyrir nýrri útrásarlögn innan bæjarmarka Hornafjarðar, frá lóð við Ránarslóð 3 og suður í gegnum svokallað Ósland að lóð nr. 4 við Miðós, þaðan að fjöru og síðan suðvestur meðfram fjörunni þangað sem hún endar í þessum áfanga sem er norður af Stapakletti. Setja þarf sökkur á lögnina þar sem hún liggur í fjöru. Einnig felur þetta útboð í sér að keyra út burðarlagi í nýjan Óslandsveg frá syðri enda malarplans fyrir austan Ránarslóð 3 og að núverandi Óslandsvegi. Einnig þarf að keyra út burðarlagi í Miðós, austur fyrir lóð nr. 4 við Miðós. Einnig þarf verktaki að útvega viðbótar efni sem notað verður í síðari áföngum, bæði lagnaefni og sökkur.
Helstu magntölur eru :
Gröftur fyrir lögnum á landi 6.500 m³
Gröftur og fylling fyrir lögnum í fjöru 490 m
Gröftur fyrir vegi 2.100 m³
Fylling undir lagnir með burðarhæfu efni 1.200 m³
Fylling í lagnaskurð á landi 3.400 m³
Fylling í veg með burðarhæfu efni 5.000 m³
Söndun lagna 1.500 m³
Skólplögn Wheolite ø800 á landi 660 m
Skólplögn PEH ø900 í fjöru 485 m
Steyptur yfirfallsbrunnur 1 stk
Sökkur úr steinsteypu (2.420 kg/stk) 131 stk
Miðað er við að full ljúka öllum verkþáttum útboðs.
Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn frá og með þriðjudeginum 9. júní 2015 gegn 5.000 kr. greiðslu.
Einnig er hægt að sækja útboðsgögnin án endurgjalds á vef sveitarfélagsins Hornafjarðar http://www.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod/ og fá lykilorð til að opna gögnin með því að senda tölvupóst á utbod1@hornafjordur.is. Taka skal fram um hvaða gögn er verið að biðja.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en fimmtudaginn 2. júlí 2015 kl. 14:00 er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð er bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.