Home Fréttir Í fréttum 90 milljóna arðgreiðsla Aðalvíkur

90 milljóna arðgreiðsla Aðalvíkur

291
0
Mynd: Haraldur Guðjónsson /vb.is

Bygginga- og verktakafyrirtækið Aðalvík ehf. hagnaðist um 67,7 milljónir króna á síðasta rekstrarári og dróst hagnaður saman um 61 milljón milli ára. Ákveðið var að greiða níutíu milljóna arð til hluthafa vegna rekstrarársins sem er fjörutíu milljónum meira en vegna ársins 2017.

<>

Tekjur af rekstri námu 1.258 milljónum og lækka um 156 milljónir. Hjá fyrirtækinu störfuðu 25 manns í tuttugu stöðugildum og námu laun og launagjöld vegna þeirra rúmum 189 milljónum.

Eigið fé félagsins var jákvætt um 190 milljónir í árslok og skuldir drógust saman um tæplega 30 milljónir. Nema þær nú rúmum 135 milljónum.

Langstærsti hluthafi félagsins er Jóhannes T. Halldórsson en hann á tæp 63 prósent.

Fjórir skipta jafnt með sér þeim hlutum sem eftir standa. Bergur I. Arnarsson er framkvæmdastjóri félagsins.

Heimild: Vb.is