Home Fréttir Í fréttum 07.05.2019 Sveitarfélagið Árborg „Smáratún 2019“

07.05.2019 Sveitarfélagið Árborg „Smáratún 2019“

280
0
Selfoss

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :   „Smáratún 2019“

<>

Verkið felur í sér endurgerð á götunni Smáratúni á Selfossi, þ.e. jarðvegsskipti götu, endurnýjun stofnlagna fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu, ásamt lagningu ídráttarröra fyrir Selfossveitur. Að lokum skal malbika götu og ganga frá yfirborði gangstétta.

Verkinu er skipt í 2 megin verkáfanga;
Í 1. áfanga skal grafa upp úr götu, leggja allar lagnir og styrktarlag.
Í 2. áfanga skal leggja burðarlag og ljúka yfirborðsfrágangi.

1.áfanga skal að fullu lokið 15. nóvember 2019
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2020.

Helstu magntölur eru:

Gröftur 5670 m³
Styrktarlag 5570 m³
Malbik 2385 m²
Fráveitulagnir 685 m
Vatnsveitulagnir 380 m
Hitaveitulagnir 299 m

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 15.apríl 2019. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu á Suðurlandi með tölvupósti í netfangið ba@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila til Eflu verkfræðistofu, Austurvegi 1-5, 800 Selfoss fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 7. maí 2019 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.