KEA skilaði tapi í fyrsta sinn í áratug í fyrra. Wow air er kennt um að ekki hafi tekist að ljúka fjármögnun nýs hótels á Akureyri.
KEA svf. tapaði tæpum 128 milljónum króna á síðasta rekstrarári. Fram til ársins í fyrra hafði félagið skilað hagnaði níu ár í röð en hagnaður ársins 2017 nam 656 milljónum.
Hreinar fjárfestingartekjur námu 73 milljónum og lækkuðu um 785 milljónir. Eigið fé í árslok nam 7,8 milljörðum, heildar eignir hálfum milljarði betur og eiginfjárhlutfall er um 94 prósent.
Í skýrslu stjórnar er þess getið að áform um hótelbyggingu á Hafnarstræti 80 á Akureyri hafi enn dregist.
Nú hafi allt verið klappað og klárt fyrir framkvæmdir en hvorki brúar- né langtímafjármögnun hafi fengist eftir að vandræði WOW air gerðu vart við sig.
Gert er ráð fyrir að fall félagsins muni hafa „tímabundið töluverð áhrif á framgang mála“.
KEA á hlut í 39 félögum sem sinna ýmiskonar starfsemi.
Meðal annars á það tæplega 44 prósenta hlut í Jarðböðunum á Mývatni en félagið jók við hlut sinn um rúm þrjú prósent á síðara rekstrarári. Hluturinn er metinn á rúma tvo milljarða í bókum KEA.
„Afkoma fyrirtækja sem KEA á eignarhluti í versnaði að jafnaði frá fyrra ári og endurspeglast það í um 91 milljóna króna neikvæðri gangvirðisbreytingu fjáreigna og var ávöxtun þess eignaflokks því óásættanleg.
Þar skiptir mestu almennt versnandi ytri skilyrði, hækkað kostnaðarstig og verri samkeppnishæfni,“ segir í frétt á vef KEA.
Þá er athyglivert að verðmæti ríflega 5% hlutar félagsins í Samkaupum ehf. hækkar um fjórðung milli ára.
Miðað við hlut KEA í Samkaupum má áætla að markaðsvirði Samkaupa hafi aukist úr 5,1 milljarði króna í 6,5 milljarða króna. Má það vafalaust rekja til kaupa Samkaupa á ellefu verslunum Basko sem reknar eru undir merkjum 10-11 og Iceland.
Félagið metur eignir sínar til gangvirðis í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaða en það þýðir að afkoma félagsins ræðst af breytingu á verðmæti eignarhluta félagsins í fyrirtækjum en ekki af hlutdeild í afkomu þeirra.
Heimild: Vb.is