F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2019 – útboð 1 – Vestan Kringlumýrarbrautar.
Útboð nr. 14473
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Malbiksfletir um 56.343 m2
Malbik um 6.307 tn.
Lokaskiladagur verksins er 1. september 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 22. mars 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. apríl 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is