F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Fossvogsskóli – Endurnýjun þaks 2019, útboð nr. 14490.
Verkið felst í: Endurnýjun þakjárns og þakglugga.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Rif og förgun (þakjárn, þakpappi og fylgihlutir) m2 670
Endurnýjun borðaklæðningar m2 400
Endurnýjun asfaltspappa (þakflötur og þakrenna) m2 765
Lektur (tvöföld grind) m2 670
Endurnýjun þakjárns m2 670
Endurnýjun þakglugga m2 (stk.) 35 (1)
Endurnýjun þakkúpla stk. 2
Verklok: 15. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 17:00 fimmtudaginn 28. mars 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 12. apríl 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is