Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnafirði milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar.
Auk þess eru innifalið í útboðinu eftirlit með gerð nýrrar vegbrúar yfir Strandgötu, gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún ásamt gerð umfangsmikilla hljóðvarna við Reykjanesbraut eins og verkinu er lýst í útboðsgögnum verkframkvæmdar. Heildarlengd kaflans er um 3,2 km.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og veitufyrirtækja.
Verkið er boðið út á hinu evrópska efnahagssvæðinu (EES). Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Útboðsgögn verða seld á minnislyklum hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 19. febrúar 2019. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. mars 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður á sama stað þriðjudaginn 2. apríl 2019 kl. 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.