Home Fréttir Í fréttum Minjastofnun dregur tillögu að friðlýsingu til baka

Minjastofnun dregur tillögu að friðlýsingu til baka

61
0
Frá framkvæmdum á Landssímareitnum. Mynd: Vísir/Vilhelm

Minjastofnun Íslands hefur dregið til baka friðlýsingartillögu sína um stækkun friðlýsts svæðis í Víkurgarði þar sem fyrirhugað er að byggja hótel, veitinga-og kaffihús.

<>

Þetta er gert í ljósi þess að fallist hafi verið á sjónarmið stofnunarinnar og fyrir liggur yfirlýsing Lindarvatns, framkvæmdaaðila á Landssímareitnum, um breytta tilhögun inngangs að hótelinu. Lindarvatn ehf., sem er eigandi fasteigna á reitnum, mun breyta teikningunni þannig að inngangur sem fyrirhugaður var gegnt Víkurgarði verði færður norðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta-og menningarmálaráðuneytinu en þar kemur fram að með þessari leið sé mætt þeim markmiðum sem lagt var upp með í síðari friðlýsingartillögu Minjastofnunar Íslands um að Víkurgarður fái þann virðingarsess sem honum beri.

Þar verði opið og frjálst almenningsrými þar sem saga garðsins fái notið sýn og fyrirkomulag hans verði framvegis óháð starfseemi á nærliggjandi lóðum.

„Þannig er skilið á milli garðsins og hótelsins sem nú er í byggingu á Landssímareitnum.“

Í tilkynningu frá Lindarvatni kemur fram að af hálfu þeirra sé því fagnað að tillaga um friðlýsingu sé dregin til baka en með því er tryggt að fyrirhuguð byggingaráform raskist ekki á sama tíma og komið sé til móts við sjónarmið þeirra sem vilja að sögu og menningu Víkurgarðs verði gert hærra undir höfði.

Í tilkynningu frá mennta-og menningarmálaráðuneytinu kemrnig gera megi sögulegt hlutverk garðsins sýnilegra fyrir borgarbúa og gesti. Samkeppnin verður auglýst á vordögum.

Heimild: Visir.is