Home Fréttir Í fréttum 21.03.2019 Grassláttur á borgarlandi í austurhluta Reykjavíkur 2019 – 2020

21.03.2019 Grassláttur á borgarlandi í austurhluta Reykjavíkur 2019 – 2020

145
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Grassláttur á borgarlandi í austurhluta Reykjavíkur 2019-2020. EES útboð nr. 14420

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í grasslætti og hirðingu á borgarlandi í austurhluta Reykjavíkur. Um er að ræða eyjar og svæði meðfram götum ásamt opnum svæðum.

Helstu magntölur eru:
· Heildarmagn grassláttar á ári er um 210 ha.

Verklok: 31. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00, þriðjudaginn 19. febrúar 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. mars 2019.