Home Fréttir Í fréttum 12.03.2019 Leikskólinn Hlíðarendi – viðbygging

12.03.2019 Leikskólinn Hlíðarendi – viðbygging

342
0
Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í byggingu viðbyggingar við leikskólann Hlíðarenda við Úthlíð 1 í Hafnarfirði, ásamt rifi á hluta af núverandi leikskólabyggingu, breytingu innandyra og frágangi lóðar umhverfis viðbyggingu.

<>

Viðbygging er um 70m² að stærð og reist með léttum timbur útveggjum klæddum steni plötum að utanverðu og hefðbundnu mænis sperruþaki klætt með pappa og bárujárni á staðsteyptum sökklum og botnplötu.

Full starfssemi verður í leikskólanum á framkvæmdartíma.

Helstu dagsetningar:
•Vettvangsskoðun: 25. febrúar 2019
•Verklok lóð: 15. september 2019
•Verklok: 15. desember 2019

Útboðsgögn eru afhent á www.strendingur.is frá og með mánudeginum 18. febrúar. Tilboð verða opnuð hjá Umhverfis- og skiplagsþjónustu Hafnarfjarðar að Norðurhellu 2, 220 Hafnarfirði þann 12. mars kl. 11:00.