Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið frestað þar sem Vegagerðin telur sig þurfa lengri tíma til hönnunar og viðræðna við landeigendur.
Vegagerðarmenn vonast þó til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og að 2+1 vegur með þremur nýjum hringtorgum verði tilbúinn árið 2022. Fjallað var um verkefnið í fréttum Stöðvar 2.
Þessum vegarkafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes lýsti vegamálastjóri í fyrra sem hættulegum og sagði brýnt að skilja að akstursstefnur. Tvö banaslys urðu á síðasta ári og háværar kröfur hafa verið um endurbætur.
Það kemur því flatt upp á marga þegar samgöngunefnd Alþingis leggur það til að fjárveiting næstu tveggja ára verði skorin niður með þeirri skýringu að verkhönnun og samningum við landeigendur sé ólokið.
Jónas Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir þetta:
„Við erum bara því miður ekki komin lengra með þetta mál. Það er ekki af því að það séu komin upp nein sérstök vandamál. En við erum bara ekki komin nógu langt með þetta, það er tilfellið.“
-Er það þá hönnunin?
„Það er hönnunin, endanleg hönnun. Því við fengum þarna endanlegt deiliskipulag núna síðastliðið sumar, og endaleg hönnun og þar með viðræður við landeigendur um hvernig þetta nákvæmlega verður, þær eru ekki komnar á fullt,“ svarar Jónas.
Fjárveiting upp á einn milljarð króna næstu tvö ár lækkar niður í 400 milljónir og færist að hluta í Grindavíkurveg til að mæta hækkun kostnaðar þar úr 500 í 700 milljónir króna.
Umferðin um Kjalarnes nemur að jafnaði um níu þúsund bílum á sólarhring en Vegagerðin áætlar að endurbætur þar kosti 3,2 milljarða króna. Þar verður þó ekki farið í 2+2 veg.
„Við erum ennþá að tala um 2+1 veg á þessum kafla.“
Og það verða engin mislæg gatnamót.
„Við gerum ráð fyrir hringtorgum við bæði Hvalfjarðarveginn og við Grundarhverfið, og jafnvel þarna við Móa eða þar um kring.“
Breytingartillaga þingnefndarinnar miðar núna við að meginþunginn í framkvæmdum á Kjalarnesi verði á árinu 2021 en þær hefjist á næsta ári.
„Þetta eru níu kílómetrar sem verið er að tala um, frá Móum og að Hvalfjarðargöngum. Það á sem sagt að klárast allt saman á árinu 2022,“ segir Jónas.
Heimild: Visir.is