Home Fréttir Í fréttum Árshlutareikningur Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2015

Árshlutareikningur Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2015

81
0

Árshlutareikningur Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2015.

 

<>

Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar 2015 til 31. mars 2015 var samþykktur af stjórn þann 28. maí 2015.

·         Rekstrartekjur námu 1.242 milljón króna.

·         Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 799 milljónir króna.

·         Bókfært virði fjárfestingareigna í lok tímabils er 53.664 m.kr. Matsbreyting á tímabilinu var 333 m.kr.

·         Hagnaður eftir tekjuskatt nam 574 m.kr.

·         Handbært fé frá rekstri nam 509 m.kr.

·         Vaxtaberandi skuldir voru 32.262 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 32.861 m.kr. í árslok 2014.

·         Eiginfjárhlutfall er 33,6 %

·         Hagnaður á hlut fyrir tímabilið er 0,40 en var 0,31 fyrir sama tímabil í fyrra.

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa þann 31. mars sl. voru 621.

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrsta ársfjórðungi var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 1.242 milljón króna og þar af námu leigutekjur 1.107 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs er 23%.

Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 799 milljónir sem samsvarar rúmri 29% hækkun samanborið við sama tímabil árið 2014.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins er 221 þúsund. Útleiguhlutfall safnsins er um 97% miðað við þær tekjur sem full útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings sem og í lok hvers uppgjörstímabils. Matsbreyting á Q1 2015 er 333 m.kr.

Stækkun félagsins og horfur

Uppbygging og stækkun eignasafns félagsins hefur verið í samræmi við áætlun og fjárfestingastefnu þess.

Þann 20. mars sl. var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og Fastengis ehf. um kaup á eignasafni Fastengis ehf. Samþykki Samkeppniseftirlits á kaupunum  liggur nú fyrir sem og fjármögnun kaupanna, verið er að ljúka við yfirferð og frágang samfara áreiðanleikakönnun.

Horfur í rekstri

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist. Útleiguhlutfall hefur verið og er hátt hjá félaginu eða um 97%,  vísbendingar eru um aukna eftirspurn eftir leigu atvinnuhúsnæðis.

 

Kynning á félaginu

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar föstudaginn 29. maí kl. 16:00 í Borgartúni 29, 1. hæð. Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu fyrsta ársfjórðungs 2015 og svara spurningum. Í kjölfarið verður Sturla G. Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, með kynningu á verkefnum sem snúa að endurskipulagningu Smáralindar, tengslum Smárabyggðar við Smáralind og vinnu við Hörpureiti 1 og 2.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/6a214fc86bcd45bab96fe9e800f36efb1d (Opnast í nýjum vafraglugga)

Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrsta ársfjórðungs og kynningargögn vegna uppgjörs á www.reginn.is/fjarfestar/

Heimild: Reginn hf.