Home Fréttir Í fréttum 05.02.2019 Reykjanesbraut (41), vegamót við Hafnarfjarðarveg

05.02.2019 Reykjanesbraut (41), vegamót við Hafnarfjarðarveg

316
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breytingar á vegamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði.

<>

Verkið felst í tvöföldun vinstri beygju frá Fjarðarhrauni inn á Reykjanesbraut til austurs og nýrri aðrein meðfram Kaplakrikalæk.

Helstu magntölur eru:
Skeringar,             2150 m3
Styrktarlag,           1600 m3
Burðarlag,               600 m3
Malbikun               7400 m2
Kantsteinar           1000 m
Vegrið                    880 m
Stoðveggur             60 m
Endafrágangur undirganga

Breytingum í vegamótum skal vera lokið 15. júlí 2019. Frágangi utan vega skal vera lokið 1. ágúst 2019.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 22. janúar 2019. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. febrúar 2019 og þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.