Home Fréttir Í fréttum Telja Lindarvatn hafa brotið gegn skyndifriðlýsingunni

Telja Lindarvatn hafa brotið gegn skyndifriðlýsingunni

270
0
Frá framkvæmdum á Landssímareitnum. Mynd: Vísir/Vilhelm

Minjastofnun telur fyrirtækið Lindarvatn hafa brotið gegn skyndifriðlýsingu á Landsímareitnum með því að setja jarðefni á svæðið sem heyrir undir skyndifriðlýsinguna.

<>

Minjastofnun ákvað á þriðjudag í síðust viku að grípa til skyndifriðunar á þeim hluta byggingarreits Lindarvatns á Landsímareitnum þar sem Víkurkirkjugarður stóð til ársins 1838 þegar hann var lagður niður.

Sama dag ákvað Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, að fallast á tillögu Minjastofnunar um að friðlýsa Víkurkirkjugarð sem er utan byggingarreits Lindarvatns á Landsímareitnum.

Lindarvatn hefur undanfarið unnið að því að reisa hótel á byggingarreitnum í Miðborg Reykjavíkur en Minjastofnun er ósátt við fyrirhugaðan inngang að hótelinu sem mun snúa að Víkurkirkjugarði.

Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar, segir í samtali við Vísi að Lindarvatn hafi sett efnið á friðlýsta svæðið innan byggingarreitsins.

Viðurlög séu við því að brjóta gegn skyndifriðun en Minjastofnun veiti aðilum stundum einfalt tiltal eftir alvarleika brota.

Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns. Mynd: Vísir/Vilhelm

Skyndifriðunin hefur það í för með sér að allar framkvæmdir á umræddu svæði eru óheimilar.

Kristín kaus að tjá sig ekki frekar um málið í samtali við Vísi.

Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns, segir fyrirtækið hafa sett fyllingu yfir svæðið innan byggingarreitsins sem heyrir undir skyndifriðlýsinguna til að geta haldið áfram með framkvæmdir á öðrum stöðum á reitnum.

Jóhannes segir Minjastofnun telja þann gjörning ólöglegan og að framkvæmdirnar raski minjum en hann segir engar minjar á umræddu svæði sem heyrir undir skyndifriðlýsinguna.

Efnið verður ekki fjarlægt að sinni því það myndi hafa frekara rask í för með sér.

Skyndifriðlýsingunni hefur verið mótmælt af hálfu Lindarvatns sem bíður eftir viðbrögðum frá yfirvöldum.

Skyndifriðlýsingin mun væntanlega rata inn á borð mennta- og menningarmálaráðherra sem mun taka ákvörðun hvort að svæðið innan byggingarreitsins verður friðað til frambúðar.

Jóhannes segir að ákvörðun Minjastofnunar verði formlega mótmælt þegar málið ratar á borð ráðherra, ef það verður ekki dregið til baka áður en að því kemur.

Minjastofnun telur fyrirtækið Lindarvatn hafa brotið gegn skyndifriðlýsingu á Landsímareitnum með því að setja jarðefni á svæðið sem heyrir undir skyndifriðlýsinguna.

Minjastofnun ákvað á þriðjudag í síðustu viku að grípa til skyndifriðunar á þeim hluta byggingarreits Lindarvatns á Landsímareitnum þar sem Víkurkirkjugarður stóð til árið 1838 þegar hann var lagður niður.

Heimild: Visir.is