Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur á um 7 km kafla Djúpvegar í Hestfirði og Syðisfirði.
Helstu magntölur eru:
- -Fyllingar 121.400 m3
- -Bergskeringar 83.500 m3
- -Styrktarlag 35.370 m3
- -Burðarlag 13.170 m3
- -Tvöföld klæðing 50.620 m2
- -Frágangur fláa 144.500 m2
- -Grjótvörn 6.630 m3
- -Ræsalögn 681 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2020.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 26. nóvember 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. desember 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.