Home Fréttir Í fréttum Fyrsta skóflustungan tekin að fjölbýlishúsi við Útgarð á Húsavík

Fyrsta skóflustungan tekin að fjölbýlishúsi við Útgarð á Húsavík

199
0
Mynd: 641.is

Á þriðjudag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju fjölbýlishúsi við Útgarð 6-8.

<>

Hana tók afmælisbarn dagsins og annar af frumkvöðlum verkefnissins Jón Helgi Gestsson en hann fagnaði 75 ára aldri.

Verkefnið hefur fengið tveggja ára meðgöngutíma eða allt frá því að þeir félagar Jón Helgi Gestsson og Jóhann Geirsson boðuðu til fundar með áhugasömum aðilum í Framsýnarsalnum.

Verkefnið fékk svo aukin þunga þegar Friðrik Sigurðsson kom að því.

Að sögn Friðriks var ákveðið að hanna þriggja hæða fjölbýlishús með átján íbúðum í mismunandi stærðum.

Áformin spurðust út og upplýsti Friðrik að þó ekki sé búið að staðfesta endanleg verð á íbúðunum sé búið að taka frá 14 íbúðir nú þegar.

Allar nema tvær af þeim verða með bílastæði í bílageymslu sem félagið sem byggir hefur keypt.

Meðalaldur þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á íbúðarkaupum er um 67-68 ár

Eftir að skipulagsnefnd Norðurþings staðfesti deiliskipulag fyrir lóðina fór framkvæmdafélagið Arctic Edge Consulting ehf. á fullt í að láta ljúka teiknivinnu hjá arkítektum og burðarþolsteikningum hjá verkfræðingum.

Arkítekt verkefnissins er KrArk arkítektastofa, Trésmiðjan Rein sér um verktöku og Steinsteypir sér um jarðvinnu og steypu.

Á næstu vikum verður verkefnið kynnt frekar fyrir áhugasömum kaupendum og upplýst um verð á íbúðunum.

Heimild: 641.is